
4 days ago
Hilmar Björnsson (S02/E09)
NÁVÍGI (S02/E09) Hilmar Björnsson
Níundi þáttur af Návígi er kominn í loftið.
Hilmar Björnsson er reyndasti framleiðandi landsins í gerð íþróttaefnis.
Hann hóf sinn fjölmiðlaferil á Stöð 2 árið 1993 og hefur komið víða við í yfir þrjá áratugi - hann stýrði Stöð 2 Sport í mörg ár og undanfarin tíu ár hefur hann verið Íþróttastjóri RÚV.
Hér fer hann í fyrsta skipti í viðtali yfir feril sinn í fjölmiðlum og fer spjallið um víðan völl enda Hilmar verið lengi í bransanum.
Meðal efnis:
- Boltinn með Guðna Bergs
- KF Nörd - þáttaröðin sem átti að halda í áskrifendur
- Hjörvar Hafliðason fer á stóra sviðið á RÚV
- Áfallið að missa enska boltann árið 2004
- Veðjar á unga menn sem vilja gera þátt um atvinnumennina okkar
- Konur fá stærra pláss á RÚV
Þetta og fleira áhugavert í níunda þætti Návígis!
Samstarfsaðilar Návígi eru:
N1 - ASKJA - LANDSBANKINN - IKEA
No comments yet. Be the first to say something!