Návígi
Efnistökin í Návígi eru knattspyrnutengd í víðum skilningi. Í þessari seríu eru þættirnir sex og er komið víða við. Margir þekktir viðmælendur koma við sögu og málin krufin til mergjar. Óhætt er að fullyrða að þarna verða sagðar sögur sem munu vekja almenna athygli. Þessi þáttaröð er einskonar ’spin off’ sería frá sjónvarpsþáttaröðinni A&B sem var sýnt á Stöð 2 Sport vorið 2025. Þema hvers þáttar eru eftirfarandi: Þáttur 1: AKRANES Þáttur 2: Bjarki Gull & Mennskan Þáttur 3: Bjarki Gull & Mennskan 2 Þáttur 4: Arnar vs Óskar Þáttur 5: Arnar vs Óskar 2 Þáttur 6: GERÐ ÍÞRÓTTAHEIMILDAÞÁTTA Umsjón: Gulli Jóns & Hjörtur Hjartar
Episodes

2 days ago
2 days ago
BJARKI GULL & MENNSKAN
Þáttur tvö nýrri seríu af Návígi. Nú verður slegið í klárinn!
Að þessu sinni er umboðsmaðurinn og fyrrverandi knattspyrnuhetja, Bjarki Gunnlaugsson gestur þáttarins. Bjarki ræðir atvinnumennsku í fótbolta í víðum skilningi, bæði sína eigin og annarra. Óhætt er að segja að Bjarki hafi farið á flug og því nauðsynlegt að skipta spjallinu upp í tvo þætti. Sá fyrri er hér.
Umsjón: Gulli Jóns og Hjörtur Hjartar
N1 - ASKJA - LANDSBANKINN - IKEA

Wednesday May 28, 2025
Wednesday May 28, 2025
Nýtt hlaðvarp á gömlum grunni! Kominn er í loftið nýr og brakandi ferskur þáttur af Návígi- vel virtu hlaðvarpi sem fyrst leit dagsins ljós árið 2018.
Umsjónarmaður, sem fyrr, er Gunnlaugur Jónsson en í þessari seríu er honum til halds og trausts, Hjörtur Hjartarson.
Sú sería sem er á leið á öldur ljósvakans er einskonar hliðarverkefni frá sjónvarpsþáttaseríunni, A&B sem nýverið var sýnd á Stöð 2 og sló heldur betur í gegn. Í það minnsta var það upphaflega konseptið. Það stækkaði hinsvegar og fór í margar óvæntar áttir. Meira um það síðar. Fyrsti þátturinn heitir Akranes.
Þar er farið um víðan völl og saga ÍA, Akraness, tvíburanna og meðreiðarsveina rifjuð upp. Við heyrum í fjölmörgum kempum sem færa okkur 20, 30 og jafnvel 40 ár aftur í tímann.
N1 - ASKJA - LANDSBANKINN - IKEA

Monday May 12, 2025
Monday May 12, 2025
Efnistökin í Návígi eru knattspyrnutengd í víðum skilning og verður skipt upp í 6 þætti.
Margir þekktir viðmælendur koma við sögu og málin krufin til mergjar og þarna eru sagðar sögur sem munu vekja almenna athygli. Þessi þáttaröð er einskonar 'spin off' sería frá sjónvarpsþáttaröðinni A&B sem var sýnt á Stöð 2 Sport vorið 2025. Umsjón: Gunnlaugur Jónsson og Hjörtur Hjartarson
N1 - LANDSBANKINN - IKEA - ASKJA